|
|
03.06.2009 19:27:17 / krian
Sumir dagar eru betri en aðrir. Staðreynd? Það held ég áreiðanlega. Stundum þarf ekki nema eitt símtal til að gera meðal dag að mjög góðum degi.
Í dag fékk ég símtal.
Annars er eina ástæðan fyrir því að ég blogga aftur sú, að þá get ég sagt eins og Barney þegar eitthvað gerist: "This will totally go in my blog!"
Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
17.11.2008 11:46:52 / krian
Ég er komin með óbragð í munnin af öllum þessum falskheitum og undandbrögðum í stjórnvöldum þjóðarinnar.
Af hverju viðurkennir enginn ábyrgð? Af hverju iðrast enginn? Af hverju situr allt þetta fólk ennþá?
Og mér svíður ekki sárast að gjaldeyrisforði okkar sé orðinn minni og að hér verði mögulega vöruskortur.
Mér svíður sárast að lífeyrissjóðir fólks séu að minnka og jafnvel hverfa. Að fólk sé að missa húsin sín og ríkið segist enga ábyrgð bera. Og að ég og næstu kynslóðir á eftir mér þurfi að borga fyrir afglöp annarra.
Og mér svíður orðsporsmissir Íslands erlendis. Þeir sem ekki höfðu farið út áður vita ekki hvaða stöðu það gaf manni að vera Íslendingur erlendis. Það var í engu sambærilegt við að vera útlendingur frá annarri þjóð. Það er okkur glatað. Kannski verða Íslendingar þá betri við útlendinga hérlendis héðan í frá.
Efa það samt.
Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
15.11.2008 11:43:05 / krian
Hæ, mig langaði að skrifa blogg.
Ég gæti skrifað um ástandið í
þjóðfélaginu. Velt fyrir mér hvort Ísland muni fara á hausinn og svo
framvegis. Blótað stjórnvöldum og bankamönnum og allt það, en það er
ekkert frumlegt, það eru allir að því.
Það á líka að stofna
nýjan flokk. Framfaraflokkurinn... Framsóknarflokkurinn? Ég held ég
kjósi hann ekki. Bara út af nafninu þiðvitið. Prinsipp sko.
Mér
finnst besta fréttaveitan í kreppudansinum vera Baggalútur. Ég mæli með
honum. Þar er fólk með á hreinu hvernig á að flytja fréttir.
Ég
gæti líka skrifað um ritgerðir og eitthvað tengt stöfunum b og a eða a
og b, en ég held ég láti það vera. Það borgar sig bara ekki ef maður
vill halda sönsum.
Annars snjóaði í nótt. Það er ekki fyrsti
snjór vetrarins, og heldur ekki annar. Heldur er þetta í þriðja skipti
í vetur/haust sem snjóar. Vel gert snjór!
Vá ég er að fá svo mörg new e-mail messages frá Feisbúkk að ég verð að fara að kíkja. Bæææææææ
Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
24.08.2008 15:27:02 / krian
Í gær var Menningarnótt og menningarfrömuðurinn ég fór í krækjuberjamó, æfði mig á fiðluna, eldaði grjónagraut (í fyrsta skipti!), horfði á Sky High (jemundur góði) og svo á Taggart. Þetta gerði ég allt hér í og í kring um Ásbyrgi.
Hvað gæti verið menningarlegra?
Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
21.08.2008 12:52:22 / krian
A...rgh.
Nú? Því það er orðið svo f...... erfitt að gera eitthvað á þessu nýja blogcentrali. Það er allt týnt og falið og flókið og erfitt. Ég ætla samt ekki að kvarta því það er leiðinlegt og ég ætla ekki að skipta um bloggsíðu því það er vesen og ég vil heldur ekki vera að spora internetið of mikið út með skítugum lyklaáslögum mínum. Ég puða bara áfram.
Mig langaði annars bara að skrifa nýtt blogg, svo hví ei? (eða er það ey (eða er það eyja))?
Ég er inni á Gljúfrastofu, segi 'Good Morning' við ferðamenn af öllum þjóðernum og reyni að útskýra að 'The Horseshoe' sé ekki alveg eins og skeifa í laginu, bara næstum því, svona hugmyndalega séð. Ástæðan fyrir þessu sé að víkingarnir hafi ekki átt tæki til þess að mynda staðinn úr lofti og fyrir þeim hafi þetta því litið út eins og skeifa. Ferðamennirnir eru ekki alveg sannfærðir og horfa á mig fullir efa. Spyrja svo 'Is it forested or is it glacial'? 'Sorry' spyr ég og reyni að líta ekki of áttavilt út. 'Is there a forest in the horseshoe or are there just sands'? 'Erm, we're in the horseshoe now'. 'Yes I know that, but is there a forest or sands'? 'There is a forest and grass, it's all grown as you'll see when you drive further in'. 'Alright, thank you' með smá þótta. Ég sem var að sýna henni inn í Ásbyrgi út um gluggann.
Æh.
Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
01.04.2008 17:34:00 / krian
Nýtt blogg í tilefni dagsins, eða eitthvað svoleiðis.
Þetta er búinn að vera góður dagur, einn af mínum fáu frídögum. Ég vaknaði í morgun og hugsaði um það sem ég þyrfti að gera í dag og hvar ég þyrfti að mæta, og ég mundi bara ekki eftir neinu. Ég trúði því varla hvað ég hefði mikinn tíma á höndunum. Það var næstum eins og einhvers konar vímugjafi að eiga svona mikinn tíma sem ég gæti notað bara fyrir mig. Svo ég hætti að hugsa um hvað ég þyrfti að gera og fór að velta fyrir mér hvað mig langaði að gera, og svo fór ég í sund. Það var í fyrsta skipti í langan tíma og mér fannst sólardagurinn í dag tilvalinn fyrir þennan merkilega atburð. Sundþolið er ekki alveg eins gott og það var, en verður fljótt að koma held ég.
Eftir sundið fór ég í 'lönsj' með Unu og Siggu. Háma er magnaður staður, það er aldrei hægt að fá borð en maturinn ekki slæmur, kannski er eitthvað samhengi þar á milli.
Svo fór ég heim og æfði mig og lagði mig aðeins því allt í einu var ég orðin svo þreytt.
Sit núna og hlusta á Janine Jansen spila The Lark Ascending eftir Ralph Vaughan Williams, hér er linkur http://www.youtube.com/watch?v=wbcuteYm-EA tékkið á þessu. Þetta er magnað verk. Ég er að æfa það núna, reyndar ekki orðið jafn flott hjá mér og henni, en einhverntíma!
Magnað annars hvað er margt merkilegt í fréttum í dag. Mbl er farið að sýna bíómyndir á netinu, HR-ingar fundu Bretabyrgi í Öskjuhlíð fullt af vopnum, Google sendir ímeil aftur í tímann og Danir búnir að selja Ameríkönum Grænland. Ótrúlega margt sem gerist á einum degi.
Vonandi heldur veðrið áfram að vera svona gott.
Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
25.01.2008 12:03:56 / krian
Klukkan sjö í morgun hringdi vekjaraklukkan. Eftir að ýta um það bil þrisvar á 'blund' settist ég varlega upp, dró gluggatjöldin aðeins frá og leit út um gluggann. Ég sá ekki neitt. Jú, ég sá gler og gluggakistu en ekkert kunnuglegt landslag. Ég komst að þeirri niðurstöðu að glugginn væri hulinn sjnó. Ég lagðist því út af aftur og féll í létt mók. Eftir að minnsta kosti tvo blundi í viðbót skreiddist ég loksins fram úr og gekk að stóra glugganum. Hann var líka hulinn snjó. Nú var mig farið að gruna að veðrið væri mögulega í verra lagi. Eftir smá umhugsun komst ég að því að eina ráðið væri að opna svalahurðina. Ég lyfti húninum og þurfti að ýta af einvherju afli til að opna dyrnar. Ég leit út og lokaði svo snögglega aftur. Það var ekki séns að ég færi í skólann í þessu veðri. Ja, samt, það er skyldumæting í þetta námskeið mitt klukkan 8.20 á föstudagsmorgnum. Vei. Svo ég ákvað að láta reyna á það. Ég klæddi mig í öll mín hlýjustu föt, þykkustu sokkana, bestu skóna, töskuna á bakið og svo út. Veðrið var orðið eitthvað betra. Það var að minnsta kosti hætt að snjóa í bili. Gangan út í Aðalbyggingu gekk tíðindalaust fyrir sig. Jú vissulega var lítil gangstétta grafa næstum búin að bakka á mig en ég komst undan. Ég komst í Aðalbygginguna en komst líka að því að tíminn minn var ekki þar. Hann var í Lögbergi. Ég þurfti því að labba til baka. Ég fann tímann en var tuttugu mínútum of sein. Kennarinn spurði hvort ég hefði einhverja spennandi óveðurssögu að segja. Nei, það var nú ekki, ekki nema kannski grafan, en ég minnist ekkert á hana, settist bara niður. Nú er ég í öðrum tíma sem er að ljúka. Hádegismatur. Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
15.01.2008 13:25:17 / krian
Það er þvílíkt ofsalega fallegur vetur úti! Þetta er ekkert nema dásamlegt. Við fréttum náttúrulega öll af grindvísku börnunum 500 sem ekki komust í skólann í gær og hver veit hversu mörg fleiri börn komust ekki í skólann í dag. Það snjóaði nefnilega hér í alla nótt og í allan dag líka. Samt er ekkert of mikill snjór, bara svona nóg. Það er orðið langt síðan ég sá svona fallegan og mikinn snjó. Það kom víst á síðasta ári, en þá var ég ekki hér til að sjá hann. Það var samt sem áður ekki snjórinn sem slíkur sem fékk mig til að brjóta hið sjálfskipaða bloggbindindi mitt. Ég sat í strætó 12 áðan og við keyrðum framhjá tjörninni. Þar var hópur af örugglega MRingum í einhverskonar hópíþrótt (áreiðanlega íshokkí ). Tjörnin er nefnilega alveg frosin og mannheld og leikheld. Þetta var ekki lítið gleðileg sjón einhvernveginn. Það var greinilega svo gaman hjá þeim og þetta minnti mig á þegar mamma fór einhvern tíma með okkur lítil að skauta á tjörninni. Ég man ekki alveg hvernig það allt fór, hvort ísinn var í lagi eða hvað, en ég var að minnsta kosti alveg afskaplega spennt yfir þessu ævintýri sem við áttum að leggja í. En kannski dreymdi mig þetta bara, það væri ekki í fyrsta skipti sem ég hef haldið að gamall draumur sé raunveruleg minning, en ég held samt ekki. Það var bara svo skemmtilegt að sjá þau þarna á tjörninni. Það er langt langt síðan ég sá tjörnina alveg mannhelda. Ég elska snjóinn og veturinn, sérstaklega ef ég er vel klædd (eins og ég var í dag). Njótið svo vetrarríkisins á meðan það endist. Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
01.01.2008 16:39:54 / krian
Ég held áfram þar sem frá var horfið. Júlí: Ég mætti upp í Herðubreiðalindir og hóf störf sem landvörður. Þetta sumar átti eftir að verða merkilegt og þroskandi. Ágúst: Störf mín sem landvörður héldu áfram. Slys (ekki alvarlegt) varð í Öskju. Bóel flutti út til Ungverjalands. Sumarstarfinu lauk og ég fór í heimsókn til ömmu í sveitina. September: Skólinn byrjaði aftur, nú hérna á Íslandi. Mamma varð fimmtug og ég keypti forlátan, rauðan sófa! Rigningartíðin mikla hófst. Október: Pabbi varð fimmtugur og mamma og pabbi héldu glæsilega sameiginlega fimmtugsafmælisveislu. Í lok mánaðarins varð ég svo 22 ára (úff, aldur!). Nóvember: Mánuðurinn hófst á tónleikum með mótettukórnum. Þar á eftir tók við mikill lærdómur og ritgerðarskil. Kennslu lauk svo 30. nóvember. Desember: Jólatónleikasyrpa mótettukórsins í byrjun mánaðar. Ég flaug svo út til Englands að heimsækja vini mína í Keele. Það var stórskemmtileg ferð. Ég kom heim til að taka jólaprófin. Á meðan ég var úti gekk hvert óveðrið á fætur öðru yfir Ísland og hefur veðrið lítið batnað síðan. Jólin komu svo og í fyrsta skipti í nokkuð mörg ár fengum við hvít jól. Jólin mín voru góð og róleg, ég söng í nokkrum messum en gerði lítið annað yfir hátíðirnar og milli jóla og nýárs. Í gær var svo gamlársdagur. Ég horfði á skaupið og skaut upp flugeldum í hífandi roki. Í dag er komið árið 2008. Það hófst með miklum veðurlátum en annars rólegheitum og messusöng. Það verður svo merkilegt að sjá hvað árið nýja ber í skauti sér. Vonandi allt hið besta. Gleðilegt nýtt ár. Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
30.12.2007 18:05:13 / krian
Jæja, þá er árið brátt liðið í aldanna skaut og nýtt ár handan við hornið. Þegar áramót nálgast er vert að rifja upp markverða hluti sem gerðust á árinu (hljómar þetta ekki alveg eins og í dagblaði eða eitthvað?). 2007 í máli (og jafnvel myndum). Janúar: Eftir gott jólafrí heima á Íslandi hélt ég aftur sem leið lá til Englands að klára skiptinema árið mitt. Þar tóku við janúarpróf og svo kveðjur, þar eð talsverður hluti skiptinemanna var ekki nema eina önn. Febrúar: Ferðamánuðurinn mikli. Í byrjun mánaðarins fór ég til Írlands með nokkrum skiptinemum og svo síðustu helgi febrúar fór ég til Svíþjóðar að hitta Kajsu vinkonu mína. Ég ætlaði að setja nokkrar myndir með hér en það gengur hálf illa hjá mér svo myndirnar verða bara að koma síðar. Mars: Lille syss fermdist í mars svo auðvitað flaug ég heim í páskafrí til að vera við ferminguna sem að sjálfsögðu var glæsileg. Ég kaus líka utan kjörfundar í alþingiskosningunum. Apríl: Ég flaug aftur út til Englands. Í þetta skipti hófst dvölin á því að ég heimsótti Ruth vinkonu mína á sveitabæ foreldra hennar í Devon. Þaðan lá leið mín aftur til Keele þar sem kirsuberjarunnarnir voru í blóma. Aftur væri gaman að sýna myndir en blog central býður því miður ekki alveg upp á það. Maí: Lokaprófin voru í Keele. Eftir það var lítið annað gert en að slappa af og skemmta sér. Keele er undurfögur á vorin og í Englandi var hlýtt og gott. Ég fór líka í helgarferð til Leeds að heimsækja Lindu vinkonu sem þar var skiptinemi. Ég var þar yfir kosningahelgina og við fylgdumst saman með Júróvísjón og kosningasjónvarpinu. Júní: Í byrjun júní fór ég með Keele hljómsveitinni til Barcelona. Það var ágætt. Ég kom svo alkomin heim í smá pásu áður en ég byrjaði að vinna. Jæja, þá er ég búin að rifja upp helstu atburði fyrstu 6 mánaða 2007. Í næsta bloggi held ég áfram og rifja upp síðari 6 mánuði ársins. Hafið það gott á meðan! Og munið, Krían flýgur fugla hæst! 
»
11.12.2007 01:39:35 / krian
Tad er mjog gaman i utlondunum. I kvold eldudum vid traditional enskan jolamat. Rosa gott. Adal kokkurinn er Matt. A morgun forum vid a afmaelisgjofina mina, Gogol Bordella tonleikana. Hlakka mikid til. Ok, short as always these days. Og munid, Krian flygur fugla haest!
»
06.12.2007 19:29:57 / krian
Hae hae, er enn og aftur i utlondum. Er i heimsokn i Englandi. Mjog gaman so far. Blogga kannski betur sidar. Og munid, Krian flygur fugla haest!
»
28.10.2007 16:36:45 / krian
Hah, ég bara varð að hafa færslu í dag. Ég veit ég er ekki búin að vera duglega að skrifa hérna, en í dag verður að vera færsla! Ég á nefnilega ammæli í dag. Ég er ammælisbarn! Mér finnst gaman að eiga afmæli, svona ef einhver var í vafa. Vúhú, hafið það gott! Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
12.10.2007 01:34:48 / krian
Hversu magnað er það að rithöfundur sem ég er nýbúin að lesa og stúdera hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár? Ansi hreint magnað skal ég segja ykkur! Það er gaman að sjá eða heyra hver hlýtur verðalaunin þetta árið og geta hugsað: Hey, frábært, ég er búin að lesa hana, hún á þetta svo sannarlega skilið. Í staðin fyrir að hugsa eitthvað á þessa leið: Hmmm, hver ætli þetta sé, kannski ætti ég að kíkja á bók eftir hana/hann. Svona hlutir gera námið áhugaverðara, þeir vita greinilega um hvað þeir eru að tala, kennararnir. Já, mér finnst þetta gaman. Það verður örugglega rætt um þetta í næsta tíma. Já, og hugsið ykkur bara 100 milljónir í verðlaun. Það er ekki slæmt. Hvað skyldi Halldór Laxness hafa fengið fyrir sín verðlaun þarna 1955? Væri gaman að vita. Til hamingju Doris Lessing með verðlaunin þín, eða kannski frekar Congratulations Doris Lessing on winning the Noble prize! Svo á hún líka MySpace síðu 88 ára gömul, pælið í snillingnum! Borgarstjórnarskipti í dag, eða á þriðjudaginn. Ágætt fyrir utan það að framsóknarbjörn er ennþá í stjórn. Einhvern veginn tekst þeim þetta alltaf, framsóknarfólki. Fylgið er nánast í mínus og samt eru þau í borgarstjórn! Það var samt hann (Björn) sem vildi selja eða einkavæða, eða hvað það nú var núna, Orkuveitu Reykjavíkur. Sjálfstæðisflokkurinn hafði þó að minnsta kosti töluverðan fjölda atkvæða á bak við sig. Hugsið ykkur líka valdið hjá manninum, hann er oddamaður í borgarstjórn, hvaða borgarstjórn það svo sem er, og getur bara slaufað samstarfinu hvenær sem honum hentar og gert sjálfstæðisfólk valdalaust. Það er samt spurning hvort hann geti leikið sama leik með nýju borgarstjórnina. Það er ekki víst að sjálfstæðisflokkurinn tæki við honum aftur, hversu mikið sem þau langaði í borgarstjórn. Vilhjálmur var samt góður borgarstjóri, eða amk betri en margur. En Dagur, Dagur er miklu sætari! Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
06.10.2007 14:45:50 / krian
Ha! Ég er búin að vera svo dugleg í dag. Ég vaknaði snemma og fór á kóræfingu. Ég var búin að ákveða í morgun að þegar ég kæmi heim ætlaði ég að hvíla mig og slaka á, en raunin varð önnur. Ég kom heim og tók til í allri íbúðinni, er að þvo þvott og skúraði meira að segja gólfið. Sumum finnst það kannski ekki merkilegt, en málið er að ég á ekki skúringakúst, eða skúringatuskur. Nei, ég lagðist á hnén og skúraði með venjulegri borðtusku og handafli. Já, hvað maður gerir ekki fyrir sjálfan sig, því þetta myndi ég ekki gera fyrir nokkurn annan (ja nema kannski mömmu og pabba). Annars er búið að vera afskaplega mikið að gera í vikunni. Verkefnaskil í skólanum, vinna, tónlistarskóli kórar. Það er yfirleitt mikið að gera hjá mér, en í þessari viku var bara aðeins meiri vinna og aðeins meiri skóli og aðeins meira stress og þetta litla aðeins meira er nóg til að gera vikuna mun meira lýjandi en annars. Til dæmis tvo síðustu daga hef ég verið að farast úr þreytu og alveg að sofna í kring um 8, en vegna verkefna og já, stundum næturhrafnaáráttu, hef ég samt farið allt of seint að sofa. Svo farið snemma að sofa! Og munið, Krían flýgur fugla hæst!
»
Síður: 1 2 3 ... 19
|
Heimsóknir
Í dag: 19 Alls: 58214
Könnun
Er Ásbyrgi eins og skeifa í laginu?
Já, auðvitað!
1 atkvæði
Ja, svona um það bil, alveg nóg.
1 atkvæði
Varla.
0 atkvæði
Nei, alls ekki.
0 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 2
|