Stjarna Norðursins
Klukkan
12.10.2007 01:34:48 / krian

Doris Lessing

Hversu magnað er það að rithöfundur sem ég er nýbúin að lesa og stúdera hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár? Ansi hreint magnað skal ég segja ykkur!

Það er gaman að sjá eða heyra hver hlýtur verðalaunin þetta árið og geta hugsað: Hey, frábært, ég er búin að lesa hana, hún á þetta svo sannarlega skilið. Í staðin fyrir að hugsa eitthvað á þessa leið: Hmmm, hver ætli þetta sé, kannski ætti ég að kíkja á bók eftir hana/hann. Svona hlutir gera námið áhugaverðara, þeir vita greinilega um hvað þeir eru að tala, kennararnir. Já, mér finnst þetta gaman.

Það verður örugglega rætt um þetta í næsta tíma.

Já, og hugsið ykkur bara 100 milljónir í verðlaun. Það er ekki slæmt. Hvað skyldi Halldór Laxness hafa fengið fyrir sín verðlaun þarna 1955? Væri gaman að vita.

Til hamingju Doris Lessing með verðlaunin þín, eða kannski frekar Congratulations Doris Lessing on winning the Noble prize!

Svo á hún líka MySpace síðu 88 ára gömul, pælið í snillingnum!

 

Borgarstjórnarskipti í dag, eða á þriðjudaginn. Ágætt fyrir utan það að framsóknarbjörn er ennþá í stjórn. Einhvern veginn tekst þeim þetta alltaf, framsóknarfólki. Fylgið er nánast í mínus og samt eru þau í borgarstjórn! Það var samt hann (Björn) sem vildi selja eða einkavæða, eða hvað það nú var núna, Orkuveitu Reykjavíkur. Sjálfstæðisflokkurinn hafði þó að minnsta kosti töluverðan fjölda atkvæða á bak við sig. Hugsið ykkur líka valdið hjá manninum, hann er oddamaður í borgarstjórn, hvaða borgarstjórn það svo sem er, og getur bara slaufað samstarfinu hvenær sem honum hentar og gert sjálfstæðisfólk valdalaust. Það er samt spurning hvort hann geti leikið sama leik með nýju borgarstjórnina. Það er ekki víst að sjálfstæðisflokkurinn tæki við honum aftur, hversu mikið sem þau langaði í borgarstjórn. Vilhjálmur var samt góður borgarstjóri, eða amk betri en margur. En Dagur, Dagur er miklu sætari!

Og munið, Krían flýgur fugla hæst!

María Rut skrifaði
já ég er sammála þer með að Dagur sé miklu sætari, líka hann er læknir,, úúú´æu
bj skrifaði
Dagur er flottur ;-)
bj skrifaði
Gleymdi einu. Doris Lessing samt flottari ;-)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 40331
Könnun
Er Ásbyrgi eins og skeifa í laginu?
Já, auðvitað!
1 atkvæði

Ja, svona um það bil, alveg nóg.
1 atkvæði

Varla.
0 atkvæði

Nei, alls ekki.
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 2